Hold'em

09.05.2009 13:28:08 / mrsmile

kickin it livin it

Auðvitað fer maður að blogga aðeins í staðinn fyrir að læra. Skínandi sól úti en samt kalt, auðvitað langar mig samt út! Búin að vera læra núna í næstum viku í þessum prófum og samt 3 eftir. Annars eru engar stórfréttir hérna meginn. Ég skellti mér á dansnámskeið(og nei enginn af strákunum þorðu með) og á eftir að skella mér aftur. Það voru alveg nokkrar ástæður fyrir því að ég skellti mér. A. Gaman B. Gaman að dansa C.liðkast aðeins. C liðkunin svínvirkaði fyrir það sem ég er byrjaður á núna sem er s.s. Muay Thai. Ég tók frían prufutíma hjá Æsi(uppá höfða) og það var ekkert aftur snúið. Ekkert smá gaman, djöfulsins púl líka. Ég svitnaði út 3kg á fyrstu æfingunni:!: Bolurinn var eins og honum hafði verið dýft í vatn. Gaman fyrir fólkið sem ég er að æfa með! Það var svo sem kósveitt líka.
     Svo lítur út fyrir að sumarið einkennist af því að vinna á apótekinu, jacobsen og london-reykjavík. Auk þess sem maður tekur svarta smíðavinnu. Ég er nú bara djöfulli sáttur að vera með vinnu fyrir sumarið. Margir í töluvert meiri skítamálum en ég. Samt frekar fúll og sár að eiga ekki pening til að fara á Sensation og áfram til spánar/búlgaríu eða hvert sem við ætluðum.  Maður verður bara að flexa í Nautólfsvík í staðinn8)
    
     Svona spái ég að sumarið verði hjá mér !
Ég fer á þjóðhátið
Ég mun ekki sofa hjá stelpu með snoðað hár í tjaldi.
Ég ætla ekki að lenda í neinum slagsmálum.
Ég mun finna mér stelpu sem er ekki ljóshærð(ég er complete sucker fyrir blondies)
Ég mun ekki lenda í neinu bílslysi.
Ég tapa ekki einum bardaga í Muay Thai.
Ég mun ekki fá áfengiseitrun.
Ég ætla að ferðast um Ísland og heimsækja fólk sem ég þekki út á landi.
Ég mun vinna 100þús í póker tourney.
Ég mun flengríða á stórfurðulegum stað(boltalandi í kringlunni!?)
Ég mun ekki raka á mér hausinn út af stupid veðmáli.
Ég mun ekki brjóta á mér hendina á hausnum á pólverja. nema auðvitað ef pólskí kemur nálægt systur minni eða vinkonum aftur.
Ég á eftir að gjösamlega sleppa mér á dansgólfunum í sumar.
Ég fer í sund alla sólríkadaga.
Afmælið hjá mér verður ennþá meira blast en í fyrra(ef það verður hægt).
Ég ætla að bencha 120kg
Ég ætla að fokking skemmta mér í sumar :D ! En þú ?!


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2009 19:40:57 / mrsmile

Ekkert spes í fréttum

Ég sagðist ætla halda áfram að blogga eitthvað amk fyrst þið eruð ennþá að kíkja hingað inn :haha:

Það eru nú einhverjar breytingar, ég var líklega að taka seinasta smíðaverkefnið mitt seinustu helgi, náði alveg 5 vinnudögum í röð og endaði á nýju jobbi, kaldhæðnislega jobbi sem ég var að gera 2006 minnir mig, glasabarn á óliver, reyndar er ég núna á apótekinu en jæja, alveg jafn brjálað að gera á báðum stöðum.
     En ef einhverjum af ykkur vantar smíðavinnu heima hjá ykkur, stóra eða litla, endilega verið í bandi, ég er nátla afburðarsmiður með öll tól og tæki 8)
Svo á mamma gamla afmæli á morgunn :) verður 52, við systkynin erum nú ekki með huges suprise partý þetta árið, enda verður það nú ekki fyrir en 55 eða 60 :) Svo er ég að fara í leikhús næstu helgi á Rústað, það á víst að vera rosalegt leikrit. ooog eitthvað fleira, já mig vantar að endurnýja fataskápinn en á engann pening sem er rosalega pirrandi, dottinn úr large bolum/peysum niður í medium og 2 buxnastærðum minni ! Soldið pirrandi, en nátla sweet árangur :) farið að glitta í six packinn og svona skera 5kg í viðbót :haha:

ooog það er búið að ákveða að fara á þjóðhátið 2009 ! of course my horse, hvaða snillingar ætla að koma með í ár ? (i'd really like to go back to spain to my villa)




» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2009 10:56:04 / mrsmile

3 Já við einu nei

Fyrirsögnin er ekkert of flókin, fyrir hvert nei sem þið látið út úr ykkur þá verða koma 3 já. Ekkert ólíkt og Yes Man með Jim Carrey. En málið er samt að það er gott point í þessari mynd þó að storylinið er jafnglært og af 90% af amerískum grínmyndum.(gaurinn er loser, gerir eitthvað til að bæta sjálfan sig, klúðrar smá með stelpunni sem hann er ástfanginn af og svo reddast allt í lokin, happy ending)
    Anyway, the simple truth is að það gerist ekkert spes í daglega lífinu hjá manni ef maður mætir bara í vinnu/skóla og velur svo að hanga heima á kveldin. Tjah jú og fara á djammið m helgar en langflestir sem ég þekki vilja alltaf gera það sama á djamminu, drekka heima hjá sér og svo niður í bæ á staðina "sína", frekar en að kíkja í allt annað partý með einhverju allt öðru fólki og enda hvarsem er, hvenar sem er. Svo vælir fólk oft að það hafi ekki orku til að gera hitt og þetta því það er alltaf svo mikið að gera. Málið með orkuforðan, þú þarft að byggja hann upp rétt eins og þol þegar þú ferð út að skokka. Ef þú gerir lítið alltaf þá geturu ekki allt í einu gert mikið... duh :)
    Lífið og tilveran verður strax áhugarverðari ef maður segir bara já við hinu og þessu, jafnvel ef vinir þínir bjóða þér í eitthvað sem þér finnst hundleiðinlegt, say yes anyway, þó það verði ekkert skemmtilegt þá getur þú tekið viðkomandi í hvað sem er í staðinn. Afhverju er ég allt í einu að predika svona, tjah ég myndi segja að ég væri bara gott dæmi um þetta. Það er nú ekkert alltof langt síðan sem ég nennti næstum aldrei að gera neitt og var frekar áhugarlaus um flest. Mínir nánustu hafa nú tekið eftir töluverðum breytingum á mér undanfarna mánuði og fyrir ykkur kunningjana sem leggja það nú samt á sig að lesa bloggið, látið bara heyra í ykkur og kíkjum á kaffihús, pool eða eitthvað til að catch up tjaaaahhh eða skoraðu bara á mig í að mæta í eitthvað sem þú ert að gera! Ég er til í næstum hvað sem er:haha:
    Annars er lítið í fréttum þannig, ræktin, skólinn, dansinn gengur vel og atvinnuleysið böggar mig auðvitað ennþá, en ég fór í gær í kópavoginn að hitta Einar Mikael að horfa á Loga í beinni, fyrir þá sem ekki vita var hann og aðrir töframenn þar, meðal annars Baldur Brjáns, kallinn fékk sér sæti bara hjá Einari auðvitað og hver sat hliðiná Einari enginn annar en Baldur 8| Þarna var setið og spjallað heilmikið. Ég hélt alltaf að pabbi minn væri með svartasta húmorinn á landinu en eftir að hafa heyrt sögurnar hans Baldurs þá er pabbi bara kettlingur :) , þvílíkir hrekkir sem koma frá manninum, hann er amk búin að gefa mér nokkrar hugmyndir:klikk:



» 2 hafa sagt sína skoðun

04.02.2009 18:49:15 / mrsmile

Helgin nálgast

Seinastur inná Nasa á laugardaginn er fúlegg :haha:
Ég og Frank(líklega Danni og Lalli líka) ætlum að vera hressari en hressastir og djamma feitan, ég er búin að vera þægur alveg núna síðan ég fór í bústaðinn, why you might ask? tjah ég tók næstum hverja helgi í sumar í djamm og tjútt, þannig það er nú allt í fína að byrja árið rólega :)
Annars er aðalástæðan þetta litla fitness átak mitt, áfengi hægir rosalega á árangrinum að skera fituna í burtu að vera að drekka mikið. Ég er samt ekkert hardcore í þessu lengur, fæ mér í glass eða djamma almennilega aðrahvora helgi, maður getur ekki hætt að lifa bara vegna þess að maður ætlar að losa sig við nokkur kíló ;)
    Ég fékk svona enlightment hvað ég er búin að minnka mikið ef ég á að orða það þannig, því ég er ekkert búin að léttast svo mikið endilega sl. mánuði. Ég var að kíkja á útsölurnar um daginn og fór auðvitað alltaf í large flíkur, nei nei kallinn bara komin í medium, keypti mér nokkra boli, fór heim og passaði í öll "litlu" fötin sem mér hafa verið gefin gegnum árin en aldrei passað í. Ég byrjaði að lyfta með Frank fyrir sirka 5 mánuðum og var þá 89kg, ég er að detta niður fyrir 85 núna, samt búin að vera "minnka" og "minnka" enda erum við að fara 5-6 daga vikunar í ræktina og ég prótínríku mataræði.
    Þannig ég fór nú að pæla, ég hef bara verið nokkuð feitur :lol: , ég hef nú ekki talið mig feitan í langan tíma, tjah stundum nokkur aukakíló sem ég væri til í að losna við og svona en enginn fatty :haha: En miðað við það að ég er búin að losa mig við sirka 15-20kg af fitu og bæta á mig 10-15kg af vöðvum(vöðvar eru 300% þyngri en fita, ætti að vera öfugt er það ekki ;D) þá fór maður nú að pæla hvar í anskotanum ég geymdi alla þessa fitu!!! Svo fékk ég annað svona slap in the face þegar ég byrjaði í þessu dansnámskeiði, enginn snerpa, enginn liðleiki og þá er enginn taktur heldur :s En það hefur verið fljótt að koma reyndar og ég stefni á alvöru form fyrir sumarið ;)
Ég er samt alveg að giska á þessar tölur, ég hef aldrei farið í fitumælingu þannig ég get ekki verið alveg 100% á því.
    Spurning um að skella sér í mælingu núna, ég er orðinn forvitinn hvað er mikið eftir, held samt sirka 5-7kg þannig í lok skólaannarinnar á þessu tempói erum við að tala um 6pack örugglega :klikk:



» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2009 23:09:27 / mrsmile

Kreppu pælingar

Sko hérna hér, ef ég lít nú aðeins í kringum mig þá eru vinir mínir flestir atvinnulausir!
hehe :lol:
Núna er ekkert að smíða og það á ekkert eftir að breytast næstu 1-2 árin þannig ég er búin að vera leita mér að vinnu eins og múkki, eins erfitt og það er að finna sér vinnu, þá er það ógerilegt að finna sér skóla með vinnu. Vinnuveitendur í dag hafa greinilega hellings framboð af þannig fólki því allir fengu þá frábæru hugmynd á sama tíma að fara aftur í skólann.
    Ég er jafnvel farinn að skoða það ef ég finn decent vinnu að hætta við þessa önn, það skiptir kannski litlu hvort ég klára stúdentinn strax eða ekki, en mig langar reyndar að komast í mína eigin íbúð sem allra fyrst þannig það væri nice að vera búin með smíðina og stúdentinn áður en ég fer í þann pakka. Ég er reyndar á þeirri stefnu núna auk þess sem maður er að koma sér í helvíti fínt form og læra nokkur danspor :haha:


ah ! já og þeir sem vilja kíkja á kaffihús og spjalla, catch up og svona, látið heyra í ykkur :) Ég er feitt dottinn í kaffistemmara þessa dagana.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2009 00:23:44 / mrsmile

Samantekt 2008

                Það er must að eiga samantekt hvað maður var að bralla yfir árið. Mér fannst 2008 vera ár sem var hvað lengst að líða, mér finnst ekkert smá mikið hafa skeð á þessu eina ári. Þegar ég hugsa til sumarsins þá finnst mér hafa verið 1-2 ár síðan. Mér finnst jafnvel þjóðhátiðin 2008 og 2006 hafa runnið hálfpartinn saman í minningu m.a.


En árið byrjaði sallarólega. Vorið 2008 var ég að klára seinustu önnina í smíðinni og ég á engar myndir teknar á þeim tíma til að hressa uppá minnið í mér. Ég kynnist Fjólu held ég 1-2 vikum fyrir páska og við byrjum saman eftir rúman mánuð. Það var nátturulega sögulegur atburður í lífi mínu í sjálfu sér að hafa byrjað með stelpu loksins og að hafa fundið stelpu sem ekki var að fara úr landi eða var ekki þegar á föstu. Allt gekk upp og vorið 2008 var ekkert smá frábær kafli, mjög góðar minningar. En svo endaði það, byrjunin á endinum var að ég misti soldið áhugan, hún líka, hún sagði mér upp, viku seinna var hún ekki viss, þá varð ég ekki lengur viss o.s.f.v. !


Ég skellti mér á tónleika yfir langa helgi til Mývatns sem var gargandi snilld, rosalega fallegt þarna fyrir norðan og auðvitað varð allt ennþá fallegra eftir nokkrar tómar vodkaflöskur. Einu „slagsmálin“ sem ég lenti í allt árið, eitt kjaftshögg á einhvern lúða sem var að áreita Evu sætu. Stórt improvement, sjáum hvort ég verði ekki slagsmálafree 2009 ! Ég var næstum því búin að tína D&G hálsmenninu mínu þarna en við fundið það daginn eftir liggjandi í grasinu, mundi bara eftir því í þarseinustu viku því ég var að láta að gera við keðjuna :)


Sumarið heldur áfram og samanstendur af heljarinnar djammi og lætum í mér, ég man vel eftir þessu tíma, sumir myndu kannski kjósa að sleppa því en ég man mjög vel eftir ákveðnum atburðum sem ýta mér á stað til þess að hugsa um marga hluti og endurskoða aðra, ég held áfram að djamma alltof mikið en á sama tíma brjóta upp slæma siði og skapa mér nýja, einnig sem ný viðhorf til margra hluta. Þetta meikar lítið sense nema fyrir nánustu vinum mínum, en þar sem þú ert búin að lesa þetta mikið þá ertu nú varla stranger ;)

      

            Svo líður að aðalatburði ársins 2008, Auður sæta Ósk systir mín giftist Sigurjóni lúða Jónssyni, þvílíkur fullkominn brúðkaupsdagur, ég man allt frá þessum degi uppá hár enda gekk allt eins og í sögu. Auðvitað hefur mér alltaf fundist systir mín gullfalleg en í brúðkaupskjól er hún svo ótrúlega falleg að það eru ekki til nógu flott lýsingarorð á íslensku.


            Svo líður fljótlega að afmælinu mínu, enginn smá læti þar sem verða POTTÞÉTT endurtekinn aftur og betur til! Allir skemmtu sér ótrúlega vel og sumir of vel :) Ég fór amk að plana næsta afmælisdag í þynnkunni daginn eftir, þannig ég sé ykkur öll aftur 26 júlí. Besta afmælisgjöfin fer tvímælalaust til Danna, gaf mér svifflug í afmælisgjöf, djöfull var það gaman!


            Eins og á hverju ári (vonandi framvegis, búin að missa smá úr) var farið á þjóðhátið, ekkert sparað í drykkjunni og því miður drapst ég í fyrsta skiptið á ævinni. Það er ekkert farið ofan af því, ég fór heim á sunnudagsnóttina til að sækja meira áfengi en kom ekkert aftur niður í dal heldur var slefandi uppí sófa steindauður. Annars gaf Smári hátíðinni auka flawor því hann var búin að fá sér þvílíkt leiktæki sem við fórum á, djöfulsins kraftur í bátkvikindinu. Svo gerði ég auðvitað heiðarlega tilraun að hálsbrjóta mig á trampólíninu góða og fékk hvítvín í heitapotttjillerí frá Svenna snillingi.


            Skólinn byrjar aftur, ég og Frank tökum hardcore pakka á þetta í ræktinni og það hefur aldeilis borgað sig, ég er að sigla í besta og flottasta form sem ég hef nokkurntíman verið í. Djammið skorið niður í 1-2 fyllerí á mánuði, þannig ég í raun gerði voða lítið, skóli, vinna, rækt og fór á eitt og eitt deit. Ég fór á lengsta deit sem ég hef farið á, heilir 7 tímar! Ég kynnist Berglindi sætu sem ég byrja mjög fljótlega með en sambandið lifir því miður ekki lengur en mánuð, án þess að fara út í details þá er mér sagt upp á msn, mjög pennt orðað hjá stelpunni því ég var svo gáttaður að ég var bara samála henni og ég hef ekkert heyrt í henni síðan.


            Árið endar ekkert svo æðislega, Óskar afi kveður okkur af völdum krabbameins og ég upplifa mesta andlega sárslauka sem ég hef nokkurntíman fundið fyrir. Afi og restinn af sveitinni horfinn og einnig það sem ég var búin að loka á fyrir mörgum árum dauði Auðar ömmu og Steina Janusar blossar aftur upp, þetta hafði allt rosalega áhrif á mig enn! ég ætla en og aftur að takmarka hve mikið ég kjafta hérna á blogginu :Þ Við famelían áttum samt rosalega góð,kósí jól og áramót.

 

Takk fyrir það og byrjum 2009 :) !



» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2008 01:27:54 / mrsmile

I like

Ennþá fullt af fólki að skoða bloggið hérna alltaf daglega þó svo að ég sé ekkert að blogga... hérna er smá afþreyting handa ykkur lúðarnir ykkar :$


I like.. Kamui and Richard Durand
I like.. Þjóðhátið
I like.. Fara til útlanda
I like.. Góður bjór í glerflösku ! t.d. hollenskur bjór
I like.. að horfa á UFC live og allar The Ultimate fighting champion seríunar
I like.. hesta, ég dýrka hesta og hunda, sérstaklega hesta
I like.. íslenskt ferskt loft og íslenska nátturu hvar sem er
I like.. austur landeyjar
I like..allt í sambandi við gömlu sveitina mína
I like.. vatn
I like.. matur sem ég elda sjálfur, því ég veit hvað mér finnst gott ! duh
I like..blonds
I like.. að keyra mig út og svo slaka gjööörsamlega á,dæmi:
a. vinna í 12 tíma, koma heim, borða eitthvað gott sem mútta hefur eldað, fara í sjóðandi heitt bað, fara að sofa í hreinum rúmfötum og sofa út !
b. taka 2gja tíma æfingu og fara svo í gufu og svo í heitan pott með skemmtilegum félagskap þangað til manni fer að svima af vatnsskorti !
c. sinna öllum verkum dagsins og þyggja og gefa ástvinum
d.bústaðartjútt !
I like.. COCA COLA ! ííiiííí´´ii´skalt og engann helvitis klaka !
I like.. Bacardi í kók
I like..heroes og allt svona sci fi dót
I like.. Braveheart, Equlibrium, Constantine, lort of the rings og allt með christian bale
I like..Pjakkur :)
I like..að hafa allt hreint í kringum mig
I like.. BMW
I like..að vera hlýtt
I like..sex ! alltaf að verða betri og betri og alltaf að verða skemmtilegra og skemmtilegra
I like..flott föt, sem eru því miður næstum alltaf dýr
I like..heitar sturtu og stóra sturtuhausa
I like..fólkið sem ég kalla vini mína
I like..chris cornell
I like..póker
I like..skemmtilegt gamalt fólk með skemmtilegar sögur, 92gja ára amma mín t.d. !
I like..
I like..tölvuleiki með strákunum
I like..my job
I like..allt sem ég smíða, elda og bý til
I love my girlfriend  :lol:
I like.. svo margt fleira ! en aðlega lífið og feeling alive !

Ekki halda að ég sé alveg high á því, næst kemur "I hate" listinn, nenni bara ekki að gera hann núna, og það vantar shitloads á þennan, þetta er svona það helsta sem kom fram eftir langann 16tíma vinnudag, ég er einmitt farinn að sofa núna !

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 21:49:24 / mrsmile

Steaming

Ég verð alltaf jafn pirraður og sár þegar ég ek frá spítalanum eftir að hafa heimsótt afa. Þessi síða er alltof opinn svo ég fari að tala um fjölskyldusöguna okkar hérna, en í stuttu máli í hvað ætti að vera 5 manna fjölskylda (afi / amma og þrjú börn) er nú mamma og afi. Við vonum innilega að afi geti átt jólinn með okkur hérna heima en að hann neyðist ekki til að vera uppá spítalanum. Því miður er litla fjölskylda okkar að minnka ekki að mér hafi hún nokkurntíman verið lítil, við erum ávalt til staðar fyrir hvort annað, samt svo ergilegt hvað ég þarf að kynnast dauðanum vel, alltaf á nokkra ára fresti þarf hann að gera vart við sig. Ég var mjög ungur þegar Villi afi dó en man hvaða áhrif það hafði á fjölskylduna, ég bókstaflega dó að hluta til þegar amma veiktist og hvarf og það eru fáir dagar sem ég hugsa ekki til hennar. Svo tekur Steini Janus æskuvinur minn upp á því að hverfa á brott líka. Þetta er ekkert ein stór sorgarsaga samt :) Súsanna er gift og á 3 yndisleg börn, Auður Ósk er búin að finna ást lífs síns og er hamingjusamlega gift, mamma með góðan kærasta til marga ára núna.
    Það verður bara rosalega þreytandi til lengdar þegar dauðinn nálgast alltaf aftur og aftur, ég óska engum langveikindum ekki einu sinni óvinum, þó ég eigi reyndar enga. Eða jú læknum sem sinna ekki störfunum sínum og fólki í ábyrgðarstörfum hjá ríkinu sem hefur enga samvisku.
Ég er alveg endalaust þakklátur fyrir að komast í ræktina 7 daga vikunar og fá alveg þvílíka útrás og slappa svo alveg af í heitum potti nokkrum sinnum í viku, ég væri svo löngu búin að missa geðheilsuna ef ég ætti ekki frábæru vini mína, sérstaklega núna í haust þegar ég varð þessi þvílíka tilfinningarvera eftir að hafa verið dauður og tilfinningarlaus síðan amma lést.
    Við stefnum á æðisleg jól hérna í Gautlandinu, systur minni til mikillar furðu kláraði ég að kaupa jólagjafirnar í dag, JÁ ! Ekki einu sinni komið desember. Það fá allir frábærar gjafir frá mér í ár þrátt fyrir bullandi kreppu.

Prófin eru að byrja, jólin eru að nálgast stressið aldrei meira, ekki gleyma að sinna þeim sem elska ykkur og verið góð við hvort annað :lol:


Mjög gömul mynd, en eina af okkur 3 sem ég er með á þessari tölvu:) :




» 6 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 18:05:45 / mrsmile

It's all good

Miðvikudagar! Láta oft bera lítið á sér, í dag(eins og alla miðvikudaga) var ég í skólanum frá 8-6 og svo er próf á morgunn þannig ég er að fara að læra í allan dag, leit í dagbókina í leiðinni og sá að ég er að fara að læra alveg framað prófum, fyrst í dag sem mér finnst mikið að taka 21 einingu EN ekki frææææðilegur að ég kvarti ! Sigurjón mágur minn er að taka 45 einingar ! Já ég er ekki að grínast og hann er að reka fyrirtækið sitt líka, beat that shit !

En á léttari nótum var ég að fá snilldar lampa ! hann er svo cool, hann er svo nettur ! dýrka líka bara að leggja hendina á hann, hlýr :)
Ég talaði um það í haust að endurinnrétta herbergið mitt en endaði á því að kaupa mér fartölvu því ég vildi nú ekki vera tölvulaus í vetur. En þessi lampi er fyrsta skrefið 8) Við vorum líka smá að fiffa stofuna til, nýjir borðstofustólar og gula sófasettið ! JÁ ÞETTA LJÓTA SETT looksins er það að drullast út. Þannig íbúðin er orðinn helviti nice núna frá því við fluttum inn :) nýtt parket, nýtt baðherbergi, nýtt eldhús ofl ofl.

og já krakkar :) ég ætla að djamma næstu helgi á laugardaginn, þannig ef þú vilt koma með tilögu hvar ég á að koma með mig (og mína rífandi stemmningu) þá lætiru mig vita ;)
p.s. aðskotadýrið hann Frank Van Beek fylgir með !

og hérna er snilldin ! :




» 3 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 15:36:05 / mrsmile

Leiðist þér ?

How to make everyday life interesting !

Leiðist þér þegar þú ert að keyra í vinnuna eða skólann ?  Taktu með þér alla ávextina að heiman sem enginn át og eru byrjaðir að rotna. Þú ert átt eftir að sjá ljótan bíl eða eitthvað fífl á eftir að svína fyrir þig eða taka 2 akgreinar. Þá er bara að taka fram ávöxtin.
Svo leggur fólk líka oft fáranlega, það má líka taka hálfmyglaða bananann og maka honum á framrúðuna.
   Er kennarinn leiðinlegur í dag ? eða yfirmaðurinn að röfla um einhvern skít sem skiptir engu máli ? segðu við hann/hana "tjah jújú en hérna, eru þessi föt sem þú ert í ekki löngu kominn úr tísku? hvenar fórstu seinast að versla föt?"  Það slær hvern sem er út af laginu og fær viðkomandi til að hold kjeft, eða amk skipta um umræðuefni.
   Hataru vekjaraklukkuna þína ? keyptu þér 3 í bónus á 100kr , stilltu þær með 10mín millibili. Kastaðu fyrstu 2 bara í vegginn eða gerðu það sem þig langar við þær ! Settu þá síðustu aðeins lengra í burtu svo þú drullist loksins framúr.
   Mikið að gera í daglega lífinu ? Lærðu að ljúga að sjálfum þér og segðu að ef þú ferð ekki á James Bond í kveld þá færðu taugaáfall á morgunn og allt verður ónýtt. Þannig þú verður hreinlega að fara á 007 í kveld.

Ertu með uppástungu til að hressa við daglega líf okkar ? endilega fræddu okkur eða hringdu í +354 who-gives-a-rats-ass-8527





» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 21:27:54 / mrsmile

UFC 91

Ég trúi því ekki ennþá að skrímslið hann Lesnar hafi unnið Randy ! En það sást fljótlega þegar bardaginn byrjaði hver hefði yfirhendina. Meina ... Randy náti ekki einu sinni utan um hann, hann er með svo stórt bak! Svo náði Randy engann veginn að koma sér undan jabs þrátt fyrir að vera léttur á fæti og á hreyfingu. Held að Lesnar hafi hitt 80% af höggunum og eitt þeirra endaði á hnakkanum á aumingja Randy.
AAAAAAAH djöfull verð ég pirraður að hugsa um bardagann !




» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2008 23:45:24 / mrsmile

15 Nóv nálgast

Er bæði Marco V og seinna um nóttina Randy Couture vs Brock Lesnar í UFC 91. Virkilega pirraður yfir því að stöð 2 sport keypti greinilega bara gamallt efni þ.a. það sem þeir hafa verið að sýna. Gamala UFC fights og raunveruleikaseríuna The Ultimate Fighter. Ef einhver vill by the way fá eitthvað af þessu þá á ég þetta allt saman á flakkara.

Við Frank erum búnir að bíða eftir Marco, veit ekki alveg hvað maður ætti að drekka. Maður er farinn að drekka svo sjaldan núna að mér finnst eins og ég verði að kaupa eitthvað geðveikt spes!





» 4 hafa sagt sína skoðun

09.11.2008 19:55:16 / mrsmile

Staðreyndir

Ég ætla að nefna 10 staðreyndir, 9 þeirra eru réttar, 1 vitlaus. Ef þú giskar á vitlausu fullhyrðinguna þá færðu vegleg verðlaun :) Ein tilraun per man/konu  :klikk:  (notið comments)
"heimild: The book of Useless information, Noel Botham"

Staðreynd 1: Bjórfroða fer niður ef þú sleikjir puttann á þér og dýfir honum í bjórinn þinn.

Staðreynd 2:  Alvöru nafn Tom Cruise er Thomas Mapother.

Staðreynd 3: Í hverjum einasta Seinfeld þætti er talað um Súperman í einhverju samhengi.

Staðreynd 4: Minna en 8% vatn í heiminum er ferskvatn.

Staðreynd 5: Þú sérð ekkert þegar þú hnerrar.

Staðreynd 6: Halli hefur átt eina kærustu.

Staðreynd 7:  Dós af deit-kók flýtur á vatni en dós af venjulegu Coka Cola sekkur

Staðreynd 8: Tómatssósa er frá Kína

Staðreynd 9: Fólk á íslandi lesa fleiri bækur per höfðatölu en annarstaðar í heiminum.

Staðreynd 10: Vöðvar eru 300% þyngri heldur en fita.





» 20 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 19:38:31 / mrsmile

26 Júlí

Fyrir þá sem ekki vita er það afmælið mitt. Fattaði það að myndbandið úr afmælinu er búið að liggja hérna í rólegheitunum í My Documents :$

Ef þið voruð ekki í afmælinu en ætlið samt að horfa á það, þá er þetta samansafn af einkahúmor og fíflaskap, but enjoy. Við hin, við getum hlegið af sjálfum okkur :haha:

og já, leikurinn verður pottþétt endurtekinn á næsta ári :lol:

Smeltu hér ! eða alla leið á http://www.simnet.is/seifur/afmaeli_halla_2008.wmv




» 0 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 15:24:37 / mrsmile

Lokaspretturinn

Jæja, núna þurfum við sem erum í skóla að segja bless við allt sem er gaman og fatta að það er u.m.þ.b mánuður eftir af skólanum. Persónulega er bara 1 djamm hjá mér fram að prófunum það er þarnæstu helgi á Marco V :d 
http://www.techno.is fyrir ykkur lúðana ! sem vitið ekki hver það er. Persónulega finnst mér hann betri heldur en Tiesto. Ég er alveg dottinn í techno þessa dagana. Skrítið hvað tónlistarsmekkurinn hjá mér rokkar í allar áttir þessa dagana.  Fór að taka upp gömlu Incubus ásamt því að fýla nýjasta Metallica líka í tætlur !

Anywho, mynd ! Þetta blogg er bara gert svo ég hafi ástæðu fyrir því að pósta þessari mynd ! Behold the great model, Sverrir Snævar Jónsson ! Greinilegt hvar Jóhanna og Steindór lærðu að pósa fyrir myndir :





» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Myndasöfn
Textabox
Halldór Vilhjálmsson
ciq1@hotmail.com
Fossvogi
8673239
Single
Fjölbraut í Breiðholti
Smiður
gjegt sætur ;)
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 26321
Könnun
Ég myndast..